Song Length |
3:33 |
Genre |
Rock - Progressive Rock, Blues - Rock |
Lead Vocal |
Male Vocal |
| |
Lyrics
3. BETRI HEIMUR
(Lag, texti, söngur: Jóh. G. Jóhannsson. T. 3.36.)
Við ? við viljum betri heim
þar sem mannleg samskipti eru metin mest
Hversvegna getur mannskepnan aldrei lært
af þeim mörgu blóðfórnum sem hún hefur fært
já ? hversvegna alltaf sömu mistökin
hvers virði er þá mannsheilinn
ef við lærum ekki neitt af eigin afglöpum
Margar þjóðir stæra sig af menningu
vísindum listum og góðri lífsafkomu
en einmitt þær gerast sekar um það
að misnota þá möguleika sem þeir guma af
og hvers virði er menningin ef hún er engum til góðs
Bræður ? systur reynum að bæta okkar heim
tökum höndum saman gerum hvort öðru ei mein
reynum fyrst og fremst að bæta innri mann
svo hjálpi hver þeim er minna kann
því það er hin vísa leið til að bæta eigin heim
Við ? við viljum betri heim
þar sem mannleg samskipti eru metin mest